Svala komin a blog.central!!!
13.08.2008 13:25:50 / svala

achtung!!!


Er að prófa nýja síðu þar sem ég er ekki lengur að fíla blog.central lúkkið á síðunni minni!:)

www.svalahrund.bloggar.is

takk!
-svala:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 17:20:04 / svala

allt getur gerst!

ég er að koma sjálfri mér á óvart núna!!!
ég hef ekki komið með færslu síðan 12 nóvember síðastliðinn! og það er alveg hálft ár síðan! vá hvað tíminn líður! 8|

en það er nú ekki mikið sem ég get kanski skrifað um, nema það að prófin eru búin, náði auðvitað öllu! aðeins ein önn eftir! þetta er alveg að hafast!!!:haha:

og svo auðvitað er það frásagnarvert að ég er að fara til Bandaríkjanna núna eftir 3 daga! ég og Halldór bróðir erum að fara í brúðkaup, alveg hrikalegt stuðið sem verður á okkur! :haha:

en annars þá langaði mig bara að henda inn nokkrum línum hérna inn til gamans! kemur svo í ljós hvort einhver muni eftir þessari fábrotnu heimsíðu!;)

þar til næst, sem verður vonandi ekki of langt þangað til!:)
-svala!

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 19:45:49 / svala

hún hló... þegar hún sló! en var þá sjálf, slegin..!

jæja!!! sæl þið!

langt er nú um liðið að vanda síðan síðasta færlsa kom frá mér! enda er alltaf nóg að gera!
en ég hef nú ákveðið að skella inn nokkrum línum og láta vita að ég er enn andandi!

annars er bara búið að vera nóg að gera í skólanum og allt það sem því fylgir! og svo er svo hrikalega stutt í próf að ég er farin að finna fyrir hræðslu! en það er minna en mánuður þangað til ég verð komin í jólafrí!
ég fer í 4 próf og þau eru 3, 4, 5 og 6 desember! öll klukkan 8:15... og er svo í 2 próflausum!
þetta er þétt dagskrá! en ég vona bara að það gangi allt eins og í sögu og maður nái þessu öllu!:)
því ef allt fer eftir áætlun þá útskrifast ég um jólin þar næstu (þá 2008 )! og ég bara hreinlega nenni ekki að vera lengur en það í skóla fyrst ég er farin að sjá framm á það að maður sé alveg að merja þetta!:haha:

svo eru allir farnir að plana, hvað skal gera eftir útskrift?
það er alltaf kosturinn að ferðast og leika sér áður en haldið er í e-d meira nám!

ég sá það nú í fréttunum um daginn að Svartahafið sé e-d tjöru-kennt þessa dagana! og að það verði einhver ár þangað til það verður búið að hreinsa það almennilega!
þannig að allir þeir sem voru búnir að hugsa um það að skella sér þangað og taka sundsprett í svartahafinu eftir útskrift! það þarf e-d að endurhugsa plönin! eða þá allavegna yrði þetta frekar stuttur sundsprettur!;) mér var nú hugsað til hennar Rahen þegar ég sá þessa frétt! útaf síðunni sem hún fann með gaurnum sem einmitt lá þar útí! sú var nú tíðin!

en mig langar nú svoltið mikið sjálf að ferðast þegar ég er búin með skólann! ferðast um bandaríkin! eða evrópu! hrikalega væri það gaman!:haha:

annars það nýjasta...
ég er nú búin að vera dugleg að stunda Sjallann uppá síðkastið... og bara skemmtistaði Akureyrarbæjar...
en nú er held ég kominn tími til þess að taka sér pásu!:)
en Páll Óskar beibí troðfyllti Sjallann síðasta laugardagskvöld! og var bara rosa stuð!
svo helgina á undan því var skellt sér á Halloween partý í Sjallanum, og þá var sko tekið á því í drykkjunni eins og í gamla daga! hah!
en eins og ég segji þá held ég að það sé komin pása á svona drykkju-miklum djömmum í einhvern tíma!:)
en það var alveg rosalega gaman að vera með stelpunum mínum í Sjallanum og dansa með þeim! og vera ekki þannig að þær þurftu að halda á mér! hehehe!;)
svo var það svo mikil snilld að ég var einmitt með henni Nönnu þegar hann Palli spurði hvort fólk væri ekki í Eurovision stuðiiiii! hehehe! bara snilld!;)

og ég var að taka eftir því að blog.central er e-d búið að breytast á þessum tíma sem ég kom ekki með færslu! allar myndirnar sem ég var búin að setja inn eru bara horfnar! hvað er það???
og þetta er nú bara orðið e-d tímafrekt vesen! var að reyna þetta og gafst upp eftir nokkrar myndir! maður þarf að minnka þetta sjálfur fyrst og e-d vesen! asnalega sett upp! og blablabla!!! heh! jæja! kemur í ljós hvernig það fer þá með þetta!:) blogga hér og myndir á myspace..! hehe!:haha:

en annars er nú ekki margt að frétta!
hlakka reyndar hrikalega til þegar bílskúrinn hjá mér og Jónasi verður loksins til og við getum flutt niður! vorum að pæla um daginn hvort við ættum að fá okkur lítið krúttlegt jólatré ef þetta verður til fyrir jól!:D:haha:
annars er þetta nú allt að koma til og maður er farinn á sjá e-d útúr þessu!:)

en jæja! er að pæla í að segja þetta gott í bili!:)

og ég verð auðvitað að setja nokkrar myndir hérna með til þess að lífga uppá og kæta!:haha:


alltaf jafn sætur!:haha: (besti vinur hennar Árnýjar!!!) ;)


Boccia liðið fræga Baugur-Group!


og er öruglega nýbúin að hafa þessa! en hún er svo glæsileg að ég ætla að hafa hana aftur!:haha:

jæja! komið gott í bili!!!

sjáumst að sinni!:haha:

-svala:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 22:46:45 / svala

stutt færlsa??? ótrúlegt!

 

jæja! nú er staður og nú er stund! fyrir nýja færslu hérna!

en hvað skal skrifa... það er spurning!

skólinn er byrjaður... mitt annað ár í VMA... sem er bara fínt! alltaf söknuður í MA en báðir skólar hafa sína kosti og sína galla! gallinn við VMA er sá að ég sakna fólksinns míns í Menntaskólanum sem ég var með allann daginn!:)

annars er lítið búið að ganga á hjá mér! bara mæta í skólann, mæta á fundi og liggja uppí rúmmi að horfa á sjónvarpið!
og ótrúlegt en satt lítið búin að fara á Húsavík...

gaman að segja frá því samt að ég skellti mér á Pál Óskar síðastliðið laugardagskvöld! og það var sko skrautlegt..! vegna tekíla (sem ég á ekki að drekka!(og það er Unu að kenna að ég drakk það!!!)) hef ekki drukkið það lengi og það er ástæða fyrir! ég hreinilega verð bara snargeðveik og rugluð af þessu ógeði! og daginn eftir lá ég allann daginn eins og skotin og var bara eins og aumingi! og hún Nanna elskan mín bókstaflega bjargaði lífi mínu! hélt uppi hárinu á mér og hélt mér uppi meðan auminginn ældi eins og hálfviti vegna þynnku og ógeðis! hefði öruglega legið á gólfinu í minni eigin ælu hefði hún ekki verið þarna! og svo fékk ég kaldann þvottapoka á ennið! takk fyrir það löv!;*
svo fékk ég pakka frá henni því hún var að koma heim til mín aftur frá Rhodos og ég fékk þessar girnilegu buxur! bara geggjaðar!:)
en ég hlakka hrikalega til að hitta allt fólkið aftur!:)

en ég er nú búin að vera e-d sljó í dag svo ég veit ekki hvaða gloríur ég er að þykjast geta skrifað niður hérna...

Jólin nálgast...

var nú öruglega ekki búin að segja frá skemmtilegri starfsmanna ferð sem ég fór í með Toyota liðinu... skoðuðum beljur, fórum í golf og borðuðum mat..! ég datt oní mýri! skelfileg lífsreynsla!

en jæja! ég ætla bara að segja þetta gott! ótrúlegt en satt! stutt færsla! og það er alveg mánuður held ég síðan ég bloggaði síðast... hmmm!

jæja! hún verður þá kanski lengri næst!;)

en ég ætla eins og alltaf að henda nokkrum vel völdum myndum með hérna inn! bara til þess að lífga uppá! (í þessu tilviki líka til þess að lengja færlsuna! hah!):)


verð nú að hafa eina frá því í starfsmannaferðinni!:) Símon, Ég og Axel! ávalt stuð!


og Ég að níðast á Írisi í busununni!:haha:


systkyna mynd! öll hittumst á djamminu um versló 2006!:)

 



og valdabaráttan í Rimasíðunni heldur áfram!!!
Kötturinn Sólon "Satan" eins og hann er oft kallaður!


og Askur! ruslarakki / sýningarhundur með meiru!

spennan eykst og þeir verða báðir djarfari og hugaðri með hverjum deginum!

segji þetta gott í bili!

-svala:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 10:17:31 / svala

Fat, ugly, stupid, toothless cunt! HAH!

þá er það mánuður síðan síðasta færlsa átti sér stað!

sumarið er að klárast! of fljótt að líða að mínu mati!

en ég verð að segja að sumarið 2007 hefur verið ljúft! mikið að gera... en samt gott!

djammið hjá mér er ekki búið að vera í það miklu mæli, ótrúlegt en satt! en mikinn bjór var drukkinn í þau skiptin sem drukkið var!
Thule stendur ávalt með mér!


Ég, Nanna og Árný í Vaglaskóginum góða..!

minnir mig á það að ég þarf að setja myndir inn frá ýmsum tilefnum í sumar!
fullt af myndum sem maður þarf að deila með veraldarvefnum..!;)

en Versló er búin og þar af leiðandi er ég búin að eiga afmæli! 19 ára orðin!
og djammið á sunnudeginum fór aðeins úr böndunum hjá mér!
vín (rauðvín í þetta skiptið;) + bjór er bara uppskrift að draugagangi eða geðveiki í mínu tilfelli!
minningarnar frá þessu kvöldi skjótast enþá upp!
- sorg yfir að hafa glatað kórónu sem ég vaknaði svo með á hausnum!
- sorg yfir að vera orðin svo gömul! (ha?)
- Böðvar dragandi mig inní eldhús í Sjallanum og skipaði mér að drekka vatn!
- sá fullt af fólki, sá í gegnum það!
- fór heim og nestaði Röggu og Dagný fyrir keyrslu útí sveit!
- sópaði gólfið inní eldhúsi!
- ofl. ofl. ofl...

svo var haldin lítil kökuveisla á mánudeginum og ég var fegurðin uppmáluð! (bullandi kaldhæðni þarna á ferð!)

svo auðvitað átti hún Dagný mín afmæli 5. ágúst! ;)
og það má ekki gleyma elskunni honum Þresti sem átti afmæli 3. ágúst!:)

en svo ég snúi mér aftur að frásögn sumarsins 2007!
þá er ég búin að vera að vinna á Toyota frá 9-6! og svo í einhvern tíma var ég líka í því að þrífa þar og þá hlómaði vinnudagurinn uppá 9- svona 8, stundum 9!
en svo auðvitað er ég búin að reyna að vera dugleg að keyra á Húsavík að hitta Jónas!:)
svo finnst mér gaman að segja frá því að ég er loksins búin að fara og skoða hið umdeilda þó áhugaverða reðursafn! og Ég náði að draga engan annan en hann Böðvar með mér! sá dagur var svo sannarlega túristalegur og við fórum líka í Laxárvikjun! það voru teknar frekar undarlegar myndir í því ferðalagi, og ég kanski skelli þeim inn við tækifæri...
sama dag var auðvitað hið árlega matarboð í Aðaldalnum! (ég segji árlega jú, búið að vera 2svar! haha!;)) en þó að það sé svoltið síðan að það var (að sökum bloggleysis, er ég að þakka núna fyrir mig) þá vill ég samt þakka fyrir mig! alveg maggnað!;)


ein tekin í Aðaldalnum!

svo var skellt sér á ættarmót síðustu helgi útá Hrísar í Eyjarfirði! set máski inn myndir af því líka við tækifæri!
en það er búið að vera nóg að gera í sumar! það vantar ekki! sem er bara gott!:)

ég er nú búin að vera góð við sjálfa mig í sumar! Ég og Jónas keyptum okkur flatskjá inní herbergi! ooo! þvílíkur munur!
og svo keypti ég mér myndavél! tími til kominn að eiga eina prívat og persónulega! festa minningar á filmu fyrir hin komandi ár!:haha:



svo verð ég auðvitað að segja frá því að Ég og Jónas minn áttum 1. árs afmæli um daginn!:) ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!:haha:


Ég og Jónas fyrir svoltið löngu! hah!:haha:

en ég vill leggja hér orð í belg! fyrir þá sem en hafa von á mér sem bloggari og lesa þetta!
þið sem eruð að fara til Rhodos! ég vill bara segja skemmtið ykkur og ekki gera neitt sem ég myndi gera!;):haha:
en ég veit að þið eigið eftir að sakna mín!
ekki drekka í hófi! og eins gott að þið djammið með mér þegar þið eruð aftur komin til landsins úr eldi og ís!:)

en núna um helgina er stefnan tekin á að fara í brúðkaup hjá Sævari og Dísu! yngsti bróðir mömmu að fara að gifta sig! rosa fjör!:)

en jæja! ég hef held ég ekkert meira að segja í bili!
stefnan var tekin á stutta færslu og ég vona að það hafi tekist!:)

náði ekki að koma öllu frá mér sem ég vildi! en þetta gerist þegar maður er ekki nógu duglegur að blogga! :)
ég var með fullt af skemmtilegum sögum og svona! en... ég man ekki núna!


þessari mynd tekst alltaf að bæta, hressa og kæta! svo það er við hæfi að loka þessari færslu með þessari yngisfögru sýn! hahaha!:)

-svala:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 12:38:39 / svala

michelin baby!

jæja!

nú er kominn þann 17 júlí!

sumarið er svona um það bil hálfnað! eða er það ekki? ég hef aldrei verið hundað prósent viss þegar kemur að árstíðunum!

ég er búin að ákveða það að þegar krakkarnir fara allir á Rhodos ætla ég sama dag að kaupa mér ljósakort og "wörka tanið" samferða þeim! kanski tek ég meira að segja bara forskot á sæluna! HAHA!-áykkur!:haha:
ég verð að gera e-d við sumarkaupið fyrst það er engin útlandaferð á dagskránni hjá mér!
fór nú í ljós áðan með Árný! en hún er nú samt að fara í 2 útlandaferðir í sumar þannig fyrir hvern 1 tíma sem hún fer í verð ég að fara í 3!:haha:

svo datt mér það í hug að ég ætti bara að kaupa mér svona króm í tennurnar eins og rapparar fá sér þegar þeir "meika það"! tjah..?
því jú e-d verð ég að gera við sumarkaupið! ekki er hægt að spara það allt saman!:haha:

en jæja fátt er að frétta en samt sem áður get ég haldið áfram!

fór á ættarmót með Jónasi um helgina! það var bara mjög fínt!
alltaf gaman á ættarmótum!

og svo áttum við Jónas 11 mánaða afmæli um daginn! tíminn er fljótur að líða! nokkrir dagar í heila árið... djöfull flýgur þetta! tæm flæs venn jor hefíng fönn! hehe:haha:

jæja! dagurinn í dag er búinn að vera sveittur og heitur... vinna í 10 og hálfan tíma!
og mér finsnt nú alveg ótrúlega gaman að segja frá því að hún Bryndís krútt kom í óvænta heimsókn til mín á Toyota í dag! það gladdi mig ekkert smáræði! (þótt hún var samt með bílinn sinn í smuri! hah!)
en bara gaman!:haha:;)

en svo verð ég nú að fara að henda inn svona hinum og þessum myndum! og svo auðvitað var ég búin að lofa Salbjörgu og Jónasi að setja inn myndirnar frá jónsmessunótt! þetta kemur allt! annars er það persónuleg afhending á diski!;)

hugsa að segja þetta nóg í bili! (þótt ótrúlegt sé ( líklegast stysta færlsa í háa herrans tíð! (sem er gott???)))

eeeen auðvitað verð ég að henda inn með einni eða tveimur myndum með! því jú! það er gaman!

 
Ég og Jónas! hress á ættarmóti! hah!:haha:


og svo ein skemmtileg af mér , aski og halldóri!:)


og hérna ein glæsileg sem ég tók af foreldrum mínum! venjulegur dagur í Rimasíðunni!:haha:

jæja! þakka í bili og sjáumst elskurnar!

-svala:)


» 18 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 10:37:50 / svala

gleði gleði gleði! gleði handa mér!

jæja!

kominn tími fyrir færlsu en hvað ó hvað skal skrifa um!

margt að gerast! en samt ekki neitt...
sumarfríið inniheldur það að dagarnir renna allir saman í eitt! sömu hlutirnir gerðir á hverjum morgni! alltaf vaknað og farið í vinnu! sinnt henni til 6! lengur ef þarf að þrífa! en svo brýtur það nú upp þeir morgnar sem ég rúnta í klukkutíma inná Ak frá Húsavík! það eru þessir "öðruvísi morgnar"
það er náttúrulega bara góð tilfinning þegar maður er að vinna og maður veit að með hverri mínútunni varstu að eignast aðeins meiri pening... og aðeins meiri pening... ooog aðeins meiri pening...

en alltaf tekur "fríið" enda og skólinn tekur við á ný og maður kemst alltaf nær því að útskrifast..! ég hlakka svo til að fá húfu! skrítið! en bara að geta verið með hana á hausnum og sagt, "ég er stúdent!" það heillar mig verulega! góóóð hugsun! ahhh!
en það er enþá svona til eða frá 2 mánuðir eftir af sumarfríinu! nóg eftir (segjir maður núna) en þetta verður búið áður en maður veit af því...

hvort að það sé gaman að segja frá því að ég drukknaði næstum því um daginn veit ég ekki! en það er þó saga að segja frá! ég var í sakleysi mínu að fá mér að drekka úr krana um daginn! og gerði þau mistök að anda að mér undir bununni en ekki drekka/kyngja vatninu! mér svelgdist svona gríðarlega á og hóstaði eins og andskotinn og já, kafnaði næstum því! bróðir minn var vitni af þessu kasti mínu og sat bara og starði... reyndi ekki einu sinni að gera Heimlich á mér! ætlaði bara að láta mig deyja... hmmm...
var líka svo gráðug í vinnunni um daginn! var að borða flögur inná lager... og kafnaði næstum því, því ég hafði ekkert að drekka með!

en svo var ég að pæla um daginn... þegar að ég var lítil telpa (vá hvað mér líður ellilega að segja þetta) en þá man ég eftir því að margir strákar voru með þessi skemmtilegu skott! voru stutthærðir, en voru með vel sítt skott í hnakkanum! oft fléttuð!
ég man allavegna vel eftir einum og ef ekki fleirrum í mínu hverfi! Nanna getur staðfest það!
en í dag eru ungir drengir með skott ekki á hverju strái... ég allavegna sé það ekki á hverjum degi!
en! ég sá einn slíkan um daginn! með eitt stykki, sítt niðrá mitt bak! ég varð frekar hissa!

svo verð ég að segja frá líðandi stundum! síðustu helgi skelltum við Jónas okkur í grill í Kotárgerðina! þar voru Ég, Jónas, Dagný, Hreinsi, Alvilda, vinkona Alvildu, Heiðar, Heimir og Ásta! gleði ríkti þar! nema ótrúlegt en satt þá drakk ég gos með matnum! Jónas fékk sér öl og ég var að fara að keyra á Húsavík seinna um kvöldið! ekki oft sem það gerist!!! en ég auðvitað komst í Thule-inn minn seinna um kvöldið! ekkert annað í stöðunni! en það var reynt að fara í Buzz en hann var e-d bilaður!:cry: ekki nógu gott! svo það var farið í Sing Star..!
við brunuðum svo á Húsavík og hittum Jónas og Salbjörgu! stefnan var tekin á rjóðrið! og þangað var haldið! Sindri vinur Jónasar var til í að keyra framm og til baka! sem var helvíti maggnað! alltaf stuð! mikil gleði ríkti í sveitinni og mikið af fólki! mikið meira að fólki núna en í fyrra! mæli með því að ÞÚ látir sjá þig að ári liðnu!;)
en ég vill annars bara þakka þeim sem það á við fyrir góða skemmtun og bara skemmtilegt fyllerí!:haha: svo gaman að detta í það og gera e-d annað en að fara í Sjallann eða á bar eða e-d!
en hún Salbjörg á hrós skilið og fær titilinn hetja kvöldsins! á meðan að aðrir eiga skilið titilinn bytta kvöldsins!;)

en ég hendi nú inn myndum frá helginni við tækifæri! svona líka í tilefni þess að ég splæsti í glænýja myndavél handa okkur hjúunum!:haha:

(en jæja! ekkert meira hef ég að segja í bili! nema hvað að í kvöld gæti verið kvöldið sem ég dey! svo ef þú vilt kveðja mig, endilega hringdu!;)
ekkert til þess að grínast með ég veit! en það lýtur svo út að ég sé að fara útí sveit og flytja einhverja hesta! og þá meina ég að sitja á honum á meðan hann hreyfist og labbar (ekki í gerði) í meira en klukkutíma..! þetta verður skrautlegt! og vonandi hef ég bara gaman af þessu!:haha: )
þetta skrifaði ég um daginn! og ég er enþá á lífi!!! og skemmti mér alveg konunglega!
e-d sem ég mun alveg pottþétt gera aftur!
fórum í 1 1/2 klukkutíma reiðtúr útí sveit og þetta já, var bara snilld! mér finnst ég svo mikil hetja!:haha:

svo vill ég bara óska henni Snædísi til lukku með daginn í dag!;*
byrjuð að grána þetta grey! fór til hennar í kökur núna í hádeginu og smínk væri held ég vel þegið handa henni í afmælis pakkann! haha! neii ég er að grínast! þú lýtur ekki út deginum eldri en 12 ára elskan! hahaha! ég er fyndin! (ha?)
til lukku með daginn elskan!;)

sáuði skemmtiferða skipið sem var í firðinum í dag? usss! Ég, Nanna og Snædís fórum niður eftir og spurðum hvað það væri þungt! og það var hva, ég man ekki! hah! 1009 tonn? eða var það 1090 tonn! allavegna nóg af tonnum!

svo er það líka að frétta að bróðir min var skorinn upp og rifinn úr honum botnlanginn! til eru myndir af því og er ekki fyirr viðkvæma að sjá! harður gaur!;)

HEY HEY HEY! Lilja Birna var að hringja í mig! og er komin á klakann (sem er mjög heitur í dag)
vúhú! gleði gleði gleði!:haha:

jæja! nóg í bili!!! ég er að vinna svo engar myndir í þetta skiptið! kanski ég hendi inn þegar ég kem heim! :haha:

-svala- sem er ógeðslega hress þessa dagana!


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 10:24:06 / svala

sumar! sæla! og nóg að gera!:)

 

jæja! þá er nú held ég kominn tími á færslu frá mér..!

það sem dregur á mína daga er bara ýmislegt, og ekki neitt...!
er byrjuð að vinna á Toyota umboðinu hérna norðan heiða! er svo enþá í því sveitta starfi að skúra á Amour aðra hverja helgi! vinna 12 daga og svo 2 í frí! svo það er nóg að gera sumarið 2007!

ATH samt áhugasamir sem myndu vilja fá mjög fína helgar vinnu í sumar og taka við af mér skúra á Amour í sumar, og ég myndi svo taka við aftur einhvertíman í haust ENDILEGA látið heyra í ykkur! ég er neflilega byrjuð að vinna lengur á Toyota núna og er frekar æst að fá frí um helgar svo að ég geti nú haldið áfram að eiga e-d líf..!:)

en já og jújú útlendingarnir okkar eru horfnir af landi brott! flogin aftur til Ameríku og nú er það komið að okkur að fara aftur þangað! ekki amalegt það, ætla ekki að kvarta!:haha:
það er markmið að fara svo til Graceland næst þegar maður heimsækir Ameríkuna!:haha:

auðvitað verð ég að segja frá því að niðurstöðurnar úr prófatíðinni minni komu mér á óvart! auðvitað náði ég öllum prófunum!:haha: kom mér skemmtilega á óvart því ég var frekar viss um vel valin fög að það væri möguleiki að ég myndi ekki ná! og þá sérstaklega sálfræðin! en þeir sem fylgjast með þessari litlu sætu bloggsíðu minni og lesa það sem liggur á mér hafa séð það að ég og sálfræðikennarinn minn vorum ekki á alveg sömu blaðsíðu í lífinu! og áttum í okkar deilum og rökræðum eins og gengur og gerist... en þrátt fyrir það allt saman þá náði ég sálfræði með glæsilegri 5! en það kom mér verulega á óvart því það var síðasta prófið mitt fyrir sumarfrí og ég gerði allt annað en að læra daginn fyrir prófið og morguninn fyrir! lagaði til í öllu húsinu fyrir komu Kanana og gerði ýmisleg húsverk! en það hvarlaði að mér að ástæðan fyrir að ég hafi náð var sú að hann hefur ekki viljað kenna mér aftur á næsta ári! en þetta er og mun vera stórt spurningarmerki fyrir mér! :)

en annars er e-d lítið í fréttum hjá mér! búin að skreppa smá á Húsavík og er næstum því búin að klessa niður 2 spóa á leiðinni...
gaman af því... ég er ekki viss, því mér bregður alveg agarlega!

en þörfin til þess að heimsækja útlönd í sumar eða í haust eykst með hverjum deginum hjá mér!
en á degi eins og í dag þá minnkar hún nú alltaf smá! (það er að segja hve ljúft það væri ef maður væri bara ekki að vinna núna) en það er þessi þvílíka blíða!
en maður þarf að gera það sem maður þarf að gera... svo mikið er víst!:)
svo þarf maður líka bara að fara að skella sér aftur útí sveit til Salbjargar og vera meiri hetja en síðast og fara úr girðingunni á baki! hehe! það var ljúf helgi!;)

kanski maður ætti bara að taka kallinn og flytja með honum suður í borg óttans! fá smá krydd í lífið og tilveruna...
er ekki viss með í dag eða á morgun en maður veit aldrei! og fyrst maður er að því á annað borð! flytja bara e-d til útlanda... nei núna er ég bara að láta hugann reika!
en eins og maður segjir svo oft, aldrei að segja aldrei!

 

en ég var á ferðinni um veraldar vefinn, lesandi fréttir og það sem brennur á heimsbyggðinni þessa dagana þegar ég rakst á skemmtilegan fróðleiks mola! eða ég hafði allavegna gaman af honum!:)

Er golfboltinn týndur ?

Á degi hverjum týnast 2.465.753 golfkúlur í Bandaríkjunum. Að meðaltali týna því 821.918 golfarar 3 kúlum á dag. Það eru næstum 900 miljón golfkúlur á ári. Hvað ætli það séu margar kúlur sem týnast á Íslandi?

og eins og alltaf æta ég að setja hérna inn einhverja mynd(ir) svona til þess að lífga uppá þetta!:)


hérna höfum við góða granna! ferskar sem aldrei fyrr og ávalt hressar..!:haha:


og svo ein góð og gömul af Mér og Jónasi!:D

 

en jæja! segjum þetta gott í bili!

já alveg rétt! ætla ekki að gleyma einu..! þessi færsla er tileinkuð henni Örnu forseta! hún bloggaði fyrir mig og ég geri slíkt hið sama..!;)

þar til næst sem verður (vonandi) ekki langt þangað til! hehehe!:)

-svala:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 18:34:14 / svala

sumarfrís færsla..! ;-p

jæja! þá er mál til komið að ég púngi út en einn færslunni!

margt er búið að eiga sér stað síðan síðasta var skirfuð..!

til að taka dæmi þá eru Keith og Julie í heimsókn, ég er komin í sumarfrí og það er allt að gerast..!

verð nú að segja frá því að ég fór í kelduhverfið fyrir stuttu! skruppum yfir helgi í sveitasæluna!
 það var alveg rosalega gaman! var þar með Jónasi og Salbjörgu og svo kom Jónas minn aðeins seinna! svo grilluðum ég, Jónas, Salbjörg, Sveinbjörn, Íris og Bjarki! Grilluðum svín, lamb og allt hvað eina! alveg agarlega gott! fengum þvílíka blíðu og sólin skein allan tíman..! það var farið í fjárhús og gefið meme-unum og grillað og drukkið bjór, spilað golf, spilað körfubolta og meira að segja hoppað á hestbak! þótt ég viðurkenni það að ég er ekki sú djarfasta þegar ég er komin á bak þótt ég sé agalegur nagli! hah:haha: en ég skreið þó á bak í smá! og auðvitað reyndi hesturinn að drepa mig! rölti með mig niður einhvern helvítis sandhól! mér var ekki alveg sama..! hah!
svo skruppum við í ásbyrgi þegar heitasti dagurinn var og þar var sko hiti og sviti!
þetta var agarlega góð helgi sem er nauðsynlegt að endurtaka! ;)

svo komu prófin og kláruðust..! þetta var nú róleg prófatíð að mínu mati! fór bara í 4 próf og var í 3 próflausum áföngum!
auðvitað rúllaði ég því bara upp og er auðvitað búin að ná öllu! meira að segja með eina 10! og það var í dansi! er agarlega stolt af því!:haha:
eins og við segjum í Rimasíðunni núna! (allt talað á ensku) MAD DANCING SKILLS! hah!

Svo var skellt sér á prófloka djamm á miðvikudaginn og ég fór til hennar Dagnýjar minnar og við sötruðum saman og skelltum okkur svo á Down Under þar sem elsku fyrrverandi bekkjarfélagar mínir voru að halda teiti! rosa stuð þar! eins og það er alltaf þegar ég hitti þessar elskur! ;)

svo bara byrja ég að vinna á mánudaginn næsta! stefnan tekin á Toyota umboðið hérna fyrir norðan... síma dama og sendi tík! hljómar vel! :)
svo verð ég skúrandi skítinn eftir dansandi og drekkandi íslendinga aðra hverja helgi á Amour... og fer svo eins mikið og ég get á Húsavík að hitta hann Jónas..! en maður verður auðvitað að djamma e-d líka hérna á AKureyrinni góðu! og skella sér auðvitað í Vaglaskóg eina vel valda helgina..!
AHHHHHHH það er sko kominn suamar fílíngur í mig..!:haha:

en jájá eins og ég sagði hérna á undan að það er bara töluð enska hérna í Rimasíðunni núna! því þau Keith og Julie eru komin til landsins og dvelja hérna í Rimasíðunni næstu 2 vikur..!
þau eru búin að skella sér í bláa lónið og í akureyrarlaug, keyrðum meira að segja til Dalvíkur í gær að horfa á Halldór keppa og auðvitað skoraði kallinn eitt mark fyrir "his manager" sem er Julia! ;)
svo kíkktu þau í teitið á miðvikudagskvöldið og stefnan er tekin á að fara með þau í Sjallann í kvöld og fara á Darude! slæmt að það sé ekkert betra í Sjallanum en maður þarf að spila úr því sem maður hefur..!:)
svo þarf maður að fara með þau á reðursafnið og e-d! hah! og reyna að gera þessa ferð skemmtilega fyrir þau..!
bara stuð í Rimasíðunni!:haha:

en jæja! ég hef held ég ekkert meira að segja í bili..!
ætla að henda inn myndum úr sveita ferðinni og svo hendi ég inn fleirri myndum seinna..!

sjáið hér! fann þessa og hún er nú svoltið skemmtileg! mér finnst það allavegna!:haha:
tekin þegar Jónas var nýbyrjaðu að láta sjá sig í Rimasíðunni!:)



en sjá mig... ég er nú eins og e-d krippildi..! hah:haha: og glæsilegur jakkinn líka! af einhverjum völdum tróð mamma mér í hann..!;)


og hey! hvert er ykkar álit! um betri systra mynd af mér og Mánga! hvor myndin er semsagt sætari í jólakort eða e-d skemmtilegt!


þessi sem var tekin á jólunum!

EÐA


þessi hér þar sem ég er að klóra henni á bakinu en virðist vera að ég sé að gefa henni meiri unað en er leyfilegt þegar systur koma málinu við! hahahaha!

 

jæja! núna er ég hætt..!
þar til næst!;)

-svala:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 23:55:41 / svala

sló til! og bloggaði..! :-)

 

jæja! aðeins 10 dagar síðan síðasta færlsa kom! ég kalla þetta framför! :haha:

verð að segja eina sögu enn af sálfræðikennaranum mínum sem elskar mig alltaf svo greinilega mikið..!
Við vorum eitthvað að tala um minnið og þessháttar, og hann snýr sér að mér og spyr mig:
Guðjón: Svala, getur þú lesið hugsanir?
og ég svaraði: heyrðu já, ég get það nú..! (agalega grobbin vitandi að ég auðvitað get það ekki!)
Guðjón: Hvað er ég þá að hugsa núna?
Ég: þú ert að hugsa hve yndislegt það væri að kenna okkur ef það væri alltaf þögn í stofunni!
Guðjón: Það er rétt hjá þér Svala!
(ég agalega ánægð!)
Guðjón: Þú ert ekki eins vitlaus og þú lýtur út fyrir að vera!
og ég varð orðlaus..! ótrúlegt! ég sagði bara Guðjón þó!!! og hann hló bara og hélt áfram...

svo sagði hann líka að það væri gaman að tala um slefandi hunda því þeir líktust svo nemendunum í VMA... hah!

en jæja! prófin nálgast og allt fer að verða brjálað! en þangað til er um að gera að slappa bara af og hafa það gott!
er til dæmis að fara núna um helgina útí sveit í góðum félagsskap! Ég, Jónas, Salbjörg, Jónas, Sveinbjörn, Bjarki og Íris ætlum að grilla, drekka bjór og hafa það kósý!
ég ætla láta reyna á það að henda mér á hestbak og auðvitað verður að ná mynd af því! stel einhverri myndavél með mér!;) hlakka til!

svo bara fer að styttast í sumarfrí! ég byrja í prófum þann 9.maí og fer í síðasta 16.maí..!
þess má geta líka að Keith og Julie eru að koma núna 15.maí og ætla að dvelja hér í held ég 2 vikur! það verður gaman!:haha:

en ég er ekki frá því að þessi góði sumarfílingur sé búinn að vera í mér þessa vikuna... agalega gott veður í dag og í gær..! bara vona að þetta haldist svona..!:haha: svooo ljúft!!!

svo byrjar maður bara að vinna og svona... ég er nú komin með vinnu yfir sumarið 2007! verð í Toyota að bralla ýmislegt og ég hlakka bara svoltið til! og svo fer önnur hver helgi í það að þrífa Amour... og svo auðvitað fer ég eins mikið og ég get útí sveitina á Húsavík að brasa e-d skemmtilegt þar!:haha: þannig það verður allavegna nóg að gera í sumar..! sem er bara gott mál!

en jæja! ætli það sé ekki best að hafa þetta bara stutt og hnitmiðað! það er allavegna alltaf markmiðið!
en ég er farin að sofa! skóli á morgun og ég er þreytt! er ekki búin að fá mér neinn blund síðustu 2 daga..! usss!

svo er auðvitað skylda að setja mynd eða myndir með hverri færlsu til þess að lífga uppá þetta!
fann þessa í dag! fannst hún í frekar fyndnari kantinum! hah!


Ég og Askur í kringum jólin greinilega að pósa saman..! hah!:haha:


Svo varð ég að hafa þessa með þegar Ég sá hana! hah! bara glæsileg! Ég og Helga agarlega ferskar í bústaðarferðinni sem við stelpurnar fórum í á Illugarstaði..! hah! ;)

en jæja! segjum þetta þá gott í bili..!

ekki ýkja langt miðað við venjulega! ánægð með þetta! góð frammistaða?

-svala:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 12:30:08 / svala

enþá brjálað að gera..!

 

jæja! jæja!

komið að en einni hérna hjá mér..!

það sem hæst ber í fréttum er auðvitað söngvakeppnin sem átti sér stað hérna á Akureyri í höllinni á laugardaginn síðastliðinn og auðvitað tókum við í VMA sigurinn auðveldlega með glæsilega flutninginn hans Eyþórs og félaga..! en Ég, Dagný og Ásta skelltum okkur á keppnina og það var brjáluð stemmning í salnum! og ég er ekki frá því að það hafi verið öskrað sem mest þegar VMA steig á stokk! brrrrrrjálðað gaman og við vorum að missa okkur í dansi og fagnaðar öskrum þegar hann flutti lagið í seinna skiptið! þetta var sko gaman!
svo lá leiðin heim til Dagnýjar þar sem Jónas og Sveinbjörn slóust í hópinn!
svo var haldið niðrí bæ og dansað og drukkið! gleði í gegn og útum allt!

en auðvitað verð ég líka að segja frá því að á föstudaginn þá slóst ég í hópinn með Jónasi og Sveinbirni! þeir voru búnir að ákveða það að skella sér í veiðiferð út í sveit! og skellti ég mér með þeim! fór með rútunni á Húsavík og keyrðum við svo þaðan útí sveitina hans Lunds! Gistum í Miðtúni!
þetta var bara rosa gaman, drukkum bjór, slappað af og auðvitað veitt! þótt því miður hafi enginn fiskur komið í þessari ferð (við kennum vindinum auðvitað um!) en það kemur næst! og það var bara verst að við gátum ekki verið lengur..!
en ótrúlegt en satt þá hafði ég bara mjög gaman af því að veiða! þetta er eitthvað sem krefst þolmæði og hún er stundum af skornum skammti hjá mér! en spennan við að draga inn línuna og sjá hvort það komi fiskur eða ekki hélt mér gangandi!:haha:
mér tókst nú samt að veiða slatta af þara og 2 vettlinga..! geri aðrir betur í fyrstu ferð!;)


Jónas á fullu!


og Sveinbjörn tók sér tíma til að snúa sér við fyrir myndavélina!

en páskafríið var nú líka ljúft! ég og Jónas skelltum okkur bara á Illugarstaði þar sem öll fjölskyldan mín hittist alltaf á páskunum! venjulegast er allt morandi í snjósleðum og gufuferðum! en í ár var snjólaust og pottur kominn við hvern bústað! þannig í ár voru það fjórhjól og maaargar pottaferðir!:haha: svo auvitað þurfti að vera vinnuhelgi hjá mér! en það reddaðist alveg! svo var farið og drukkið smá á sunnudeginum og ég hitti sætu stelpurnar mínar þær Nönnu, Örnu, Árný, Snædísi og Lilju!;)

Svo eru kosningarnar uppí VMA í fullu gangi! og frambjóðendur eru að gefa okkur fullt af nammi, mat og gosi! ekki amarlegt það! maður sparar pening og sleppir því að fara í sjoppuna! hah! ljúft!;) maður á að nýta sér þetta!

en jæja! ég hef ekki meira að segja í bili! því ég er orðin of sein í skólan og hef þar af leiðandi ekki meiri tíma til þess að skrifa meira! kanski jákvætt því núna er færslan kanski frekar í styttri kantinum!;)

en athugið að ég setti inn myndir hér til hliðar! nokkrar myndir frá veiðiferðinni og nokkrar frá því heima hjá Dagný á laugardaginn! ekki margar myndir en þetta er eitthvað!:haha:
Veiðiferð og Heima hjá Dagný 14 Apríl heitir það..!

jæja! nóg í bili!:$

-svala:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 12:23:09 / svala

Brjálað að gera..!

 

jæja..! þá er komið að því! loksins færlsa..!

ég hef ekki mikið verið í tölvunni hérna heima og kenni því um..!
en marg hefur dregið á mína daga síðan að síðast að færlsa kom hér inn... (alltaf virðist ég skrifa þetta í færslur..!)

en mér var tjáð það um daginn af henni Árný Ósk að ég ætti að hafa stuttar færslur! sem ég virðist ekki geta gert en ég ætla samt sem áður að reyna..!
en miðvikudagur! og eins og flesta miðvikudaga þá er teiti hérna í Rimasíðunni og mættu þær Snædís, Árný, Helga og Lilja í það í gær! í þetta skiptið kom Lilja með agalegt nuddtæki sem Amma Solla á! og einhversslags krem og nammi! semsagt bara poki með fullt af dóti! og hamaðist Lilja með þetta á bakinu á Snædísi! Ég vildi henda namminu á bakið á henni en fékk ekki góðar undirtektir! og má nefna það með að ég og Snædís vorum að brillera í 21! vúhú!

Árshátíð VMA var nú á dögunum! reyndar svoltið síðan, en já! Ég, Jónas, Sveinbjörn, Jónas, Salbjörg og Íris skelltum okkur í matinn!
en þetta var svo geggjuð helgi því svo á laugardeginum var tekið Ród Trip! skelltum okkur öll á Húsavík og haldið var uppá 19 ára afmælið hans Lunds! bara gaman! Ég, Sveinbjörn og Þröstur byrjuðum teitið um hálf 5 og drukkið var framm eftir nóttu og skellt sér á Baukinn! sumir eru einu bílprófinu fátækari eftir þessa helgi! hah! en þetta var skemmtun útí eitt

er ekki rétt að skella nokkrum myndum hérna inn frá því!


afmælisbarnið hann Sveinbjörn Lund..!


gleðis ríkti meðal fólksins! Ég og Þröstur í hrókasamræðum!


Jónas á leiðinni á árshátíðina..!

athugið að ég er búin að setja inn myndir frá árshátíðinni og afmælinu hérna til hliðar:)

ég er nú orðin agalega heilsusamleg og finnst mér ég verða að segja frá því fyrst ég er að henda nokkrum línum hérna inn! 3 daga í röð tók ég á því skellti mér í fjallið með Dagný! út að hlaupa með Salbjörgu og Sveinbirni! og fór svo í blak á fimmtudeginum með nokkrum menntskælingum! og svo spilar margt inní það! hmmm! já! hah!:)
svo auðvitað á opnu dögunum í VMA skelltum Ég, Jónas,Lund, Jónas og Salbjörg okkur í Átak! og þar var sko tekið á því! svitinn var útum allann salinn!

svona fyrst ég er farin að segja frá því hvað er að gerast í lífi mínu þessa dagana þá verður það að fylgja að ég lifi við ofbeldi innan heimilis míns! þótt fólkið í MA geti ekki níðst á mér daglega ætti það að hugga þá aðila sem voru í því verki að það heldur áfram! bara um daginn þá var ég inní eldhúsi, og var eitthvað að tala við hundinn á heimilinu! jújú... og ég ligg þarna í mínu sakleysi... kemur móðir mín og sparkar í mig..! ég lýg því ekki! kanski ekkert fast, en þetta var samt spark!8| hah!

ég er líka oft að segja frá félaga mínum sem kennir mér sálfræði! hann kom nú með eitt gott í gær! hann hvarf úr stofunni og kom til baka með langt prik, öruglega 2 metrar eða svo! kveikti á skjávarpanum (því han náði ekki upp) og sagði að þetta prik væri líka gott á óþæga nemendur, og tók prikið og þóttist lemja eina í hausinn með því! kom mér á óvart að hann hafi ekki hjólað í mig með það! :) hah! og svo var hann alltaf að segja okkur að vera plugged in! því við lærum ekkert ef við erum ekki plugged in! STAY PLUGGED IN! og að töfra aðferð við að muna sér að fylgjast með! svo sagði hann okkur að við ættum að muna að það sé ókeypis að læra..! svo var það líka svoltið skondið fannst mér þegar hann vildi gefa mér bjartsýnisverðlaun..! hmmm!
og svo var það þegar við vorum að tala um minnið... þá sagði hann e-d í þá áttina að maður þurfti að vera virkilega stoned ef maður myndi ekki muna eftir sínu eigin brúðkaupi..!
jú! viskubrunnur svo mikið er rétt..!;)

Hann Þr-stur sem við öll elskum svo heitt er svo að stinga af suður núna næst komandi laugardag..! hans verður sárt saknað..!


hérna er drengurinn eins og hann á að sér að vera!

en já! í dag er gott veður! sólin skín og lífið er yndislegt! 2 dagar í páskafrí! og það mun einkennast af svefni! vinna á Amour! Sjallinn - Á móti sól, Sjallinn - Páll Óskar, Illugarstaðir með fræknu föruneyti!, og skella sér á Húsavík og hafa gaman þar líka! :haha:

en jæja! ætli þetta verði ekki nóg í bili! svo að þetta verði nú ekki of langt að þessu sinni!

og svo er það bara að reyna að koma með færlsur aðeins oftar! það held ég..! :haha:

-svala:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 18:09:51 / svala

LOKSINS..! hoh..! :-)

jæja, þá er nú held ég kominn tími á nýja færlsu hjá mér, það er víst að verða góður mánuður síðan ég skrifaði hérna síðast, en ég kenni ví um að talvan heima er búin ð vera úr umverð núna í dágóðan tíma..! ekki gott það..!

en margt er búið að eiga sér stað síðan síðasta færlsa átti sér stað..!
þá má nefna alveg maggnaða ferð okkar telpnanna á Illugarstaði..! loksins önnur bústaðar ferð..! það var eldað FAAAAHITAAAAS! farið í pottinn, spjallað mikið, horft á handbolta, borðað köku og auðvitað með þessu öllu drukkið bjór..! ;)
en það er nú svo mikið sem ég hef að segja frá núna að ég veit ekki hvar ég á að byrja og hvað ég á að skrifa svo að þetta verði nú ekki löng og leiðinleg færlsa... hmmm..!

og í vikunni skellti ég mér nú barasta í sund! í fyrsta skiptið hérna heima í svona hva, að verða 2 ár held ég..! og það var bara helvíti gaman! ég skellti mér með Jónasi, Sveinbirni og Jónasi..! það var farið slatta í rennibraut, gufubað og heiiiiitan pott og hana slagur og fleira og fleira! ég skemmti mér hrikalega vel! ótrúlegt! ég sem var engan vegin sundmanneskja, en alltaf er maður að brreytast! hah! svo var skellt sér í brynju í besta ís í bænum! og svo kom það sem toppaði kvöldið! hef sjaldan hlegið jafn mikið..! þeir voru sem sagt 4 sem bara létu hárið flakka..! Jónas, Sveinbjörn, Jónas og Fúsi eru núna allir sköllóttir! en það var nú beitt hópþrýstingi á suma og fyrir suma var kastað upp peningi..! ég var að sjálfsögðu með myndavélina á staðnum en þær verða að koma seinna því ég er stödd á Húsavík og hef ekki myndirnar hérna..! en þetta var snilldarkvöld og ég grét úr hlátri..!

ég verð nú að segja frá því þegar ég skellti mér um daginn með nokkrum drengjum í fótbolta..! hlaupa og djöflast í svona 12 stiga frosti! og mér tókst meira að segja að skora 2..! helvíti stolt af því! en ég fékk nú að finna fyrir helvíti miklum strengjum og pínu daginn og dögum eftir..! hef sjaldan verið jafn ónýt í skrokknum..! en þetta var bara gaman og stefnan er að endurtaka þetta sem fyrst..!;)

og til að segja frá því hérna þá lennti ég aftur í skemmtilegu atviki í skólanum við sálfræðikennarann minn... við vorum e-d í tíma bara og ég gerði þau mistök að tala e-d við Kollu, og þá sagði vinurinn við mig:
Guðjón: "svala!"
Ég: "jááá?"
Guðjón: "viltu haga þér!"
Ég: "ókey..."
Guðjón: "já viltu haga þér..!"
Ég: "heyrðu ég skal bara reyna það já"

og þannig endaði það... og ég hissa, eins og áður fyrr...

en ég er með eina uppástungu hérna... og ég vill hérna formlega biðja um sjálfboðaliða til þess að hjálpa mér við þetta! og þá kanski sérstaklega biðja hana Snædísi til þess að bjóða sig framm fyrst við eigum að baki skemmtilegt bíla innbrot saman..! En ég semsagt var að labba á bílastæðinu í VMA um daginn og sá þá þar bíl sem var búinn að plasta inn... Þá var búið að taka fuuullt af svona plast filmu og gjörsamlega plasta hann allann..! ég horfði smá á bílinn og hugsaði... djöfull væri gaman að prófa þetta..! en þetta er svona hugmynd..! ha! Snæja Blö?;)

en eg tel það hérna vera skylda mín að segja frá því að 18 febrúar síðastliðinn var mikill hátíðisdagur! og við gleymdum öll að halda uppá hann..! þá var jú áramót hjá kínverjum..! hin kínversku áramót og við gleymdum að halda daginn hátíðlegan..! en í ár er jú ár svínsins..! og þess má til gamans geta að í fyrra var ár nautsins... stelpur..! teiti næsta ár..? fyrt við erum allar pínu skáeygðar við og við..! ;)

og heyrðu..! ég er búin að búa til vaxtaræktar myndband..! ný æfing með lóðir! kallast sund æfingin..! mæli með að fólk prófi..! ég er komin með agalega upphandleggsvöðva..! Þetta hófst eftir að við nokkur skelltum okkur á Rocky fyrir stuttu...  viltukomíslag??? hoh!

Teiti í gærkvöldi..! Americas bara búið! en ekki Nip/Tuck! svo ég held að teitin haldi sínu striki!:) agalega uppátækjasamir þættir..! þeir sem fylgjast með skilja..! síðast í gær kyssti hún Julia dverg! og það er allt að gerast..!

og núna fer ég að segja þetta gott held ég! en ég hef nú engar nýjar myndir að setja hérna..! þannig ég set bara einhverja gamla til þess að hafa e-d..!


Ég og Mamma krútt í útlöndunum..! :)

en jæja, ég reni nú ekki að láta svona langt líða framm að næstu færslu..! ég kenni bara tölvunni og Halldóri hlussu um..!;)
en jæja, nóg í bili þá..!

-svala:)


» 15 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 21:57:38 / svala

og hér dettur ein..!

jæja...

ein önnur helgin að ganga í garð... föstudagur á morgun..! en ég er byrjuð aftur að vinna klukkan 8 á föstudags og sunnudagsmorgnum aðra hverja helgi... svo það er svona spurnsmál hvort e-d verður gert að viti... svo sem skella sér á papana eða eitthvað í þá áttina... en annars er auðvitað alltaf til það að fara timruð í vinnuna... þetta er spurning..! afmælisteiti ársins á líka að vera haldið! ég fékk boðskall! ætli maður láti sig ekki hafa það..!:haha:

miðvikudagur í gær! þýðir bara eitt! Americas hittingur! (sem er að vísu að breytast í Nip/Tuck sem leiðir að Pepper Dennis sem leiðir að Gray's Anotomy kvöldi) endaði í seinni kantinu! sem er náttúrulega bara gott..!
Lennti nú í agarlega kjánalegu í hittningnum í gær..! var með kjánahlátur í maganum í hálftíma á eftir..! en hún Arna lýsti þessu svo vel í sinni færslu að ég ætla að stela punktinum hennar..!;)
 "ég verð að segja litla sögu.. við sátum sem sagt fjórar, ég, lilja, nanna og svala, uppá sjónvarpsloftinu hennar svölu. svo heyrði ég í einhverjum niðri og bjóst við það væri jónasinn hennar svölu en hugsaði með mér "hvar er halldór?". og ég spurði svölu: "svala hvar er halldór?" og þá tók svala sig til og öskraði í áttina niður: "HANN ER HJÁ INGA" því hún hélt að einhver niðri hefði verið að spurja.. kemur svala! HEHE"

og þannig var það..! frekar kjánalegt! hah!

Menntskjælingar búnir í prófum! til lukku með það lömbin mín..!;) kanski fer maður að sjá andlitin á þessum skrípum meira núna..! það var allavegna áramóta heitið mitt!

það var e-d sem ég heyrði í reykjavík síðdegis sem ég ætlaði að deila með ykkur hérna... en ég man ekki hvað það var... satan...

listagyðjan sem umlék mig hér áður fyrr í færlsugerðum hefur greinilega yfirgefið mig...
því ég sit hérna fyrir framan skjáinn, alveg tóm! með Jack Johnson - Banana Pancakes raulandi fyrir mig...


nýjast myndin af okkur frænkum! þær eru ófáar..!


Lilja kom um jólin..! þessi var tekin af okkur þá..! já! Lilja Birna og Ég er þetta..!

ekki lengra í bili þá! vá þessi var stutt..! miðað við á venjulegum skala hjá mér..! hmmm! hah!:haha:

-svala:)


» 14 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 17:45:39 / svala

Helgin..! strax komin aftur! gott mál!:)

jæja, þá ætla ég að koma annari færlsu hérna inn...

(áttaði mig á því þegar ég kláraði að skrifa þessa færslu að hún er kanski í lengri kanntinum, en ég skal reyna að hafa þær, jú stuttar og hnitmiðaðar voru orðin..!);)

telpurnar mínar voru eitthvað ekki sáttar við mig eftir síðustu færslu... þannig ég segji það bara hér og nú og þær eiga nú að vita það að þær voru allar mjög stór hluti af árinu 2006 hjá mér..!;)
endurvekja blak-kvöldin..! það var í umræðunni..!

ég get nú strax sagt eitt um hana Snædísi, við vorum hérna heima síðastliðið miðvikudagskvöld, horft var á Nip/Tuck, borðað doritos rétt og spjallað útí eitt..! og þegar þær ákváðu að fara drífa sig heim lenti hún Snædís okkar í pínu slysi..! Eins og allir hafa tekið eftir er búið að snjóa harkalega hérna í bænum, og hún var í sakleysi sínu að labba út göngustíginn frá húsinu mínu og ég var e-d að tala við þær þegar þær voru að koma sér út, og ég kom auga á Snædísi, þegar það kom í ljós að hún átti í einhverjum vandræðum með skóinn sinn... (tek það framm að hún var í náttbuxum, og náttbuxur eru ekki gerðar úr þykkasta efni í heimi) og já, hún var föst eða e-d, og fór úr skónum, stóð á einum fæti í snjónum, skólaus á hinum, og ég hugsaði inní mér ohhh! afhverju er ég ekki með myndavél og mig langar út að ýta henni í skaflinn... en ég þurfti þess nú ekki því hún var e-d farin að vagga greyjið og vaggaði meira og meira (e-d vafasamt jafnvægisskynið) og að lokum hlammaðist hún með rassgatið í snjóinn, á einum skó í náttbuxum! og það var sko hlegið! og hún kom upp að hurð, agalega mikið grey og átti hrikalega erfitt með sig eftir þetta áfall..! en ég verð að segja í hreinskilni að okkur hinum var nú pínu skemmt!;) lov jú beibí!

og mér finnst það nú svoltið eftirminnilegt þegar ég og árný vorum að fara e-d, ætluðum á mínum bíl, minnir að þetta hafi verið í 1. bekk í MA... en einhvernvegin náði ég að festa hendina á henni í glugganum á bílnum mínum, hún standandi úti í snjó, með hendina fasta inní bílnum og ég keyrði smá áfram og lét hana hlaupa smá... það var eftirminnilegt!;)

með hana Örnu þá er náttúrulega gelgju atvikið í 10.bekk verulega eftirminnilegt! byrjunin á einhverju sem mér hefði aldrei þá dottið í hug að myndi verða vinátta..! hah! ;)

Granninn minn! búin að þekkja hana Nönnu í 18 ár..! búum á móti hvor annarsi en samt hringjum við á milli!;) margt gæti ég sagt um hana Nönnu! höfum nú brallað óteljandi hluti í gegnum tíðina! Síðuskóla tímar! Dúkkuhúsið góða, Palomino og ýmislegt fleira! löv!;)

og Begga var líka e-d ekki sátt við síðustu færlsuna mína, svo að ég verð að segja við þig Begga mín, að ég mun sko láta þig hafa það óþvegið eftir vatnsslaginn góða í gryfjunni..! ;)

en ég lennti nú í einu ekki svo skemmtilegu í Sálfræði í gær, verð að deila því... ég mætti svona 5 mínútum of seint, en ég held að kennarinn hafi vonað að ég myndi ekkert mæta yfir höfuð, því að þegar ég kom inní stofuna og settist niður þá horfði hann á mig og sagði: (svona var samtalið)

Guðjón: "Svala...,,
ég: já...
Guðjón: "viltu vera þæg í dag..?,,
ég: ha???
Guðjón: "já viltu vera þæg í dag?
ég: ha??? (hálf hlægjandi en samt svonltið ráðavilt)
Guðjón "já bara ekkert tala í dag... (og gerði svona talandi munn merki með hendinni)
ég: (frekar hissa og vandræðaleg) uuu, jájá... ég ætti nú alveg að geta gert það...
Guðjón: "já... (smá þögn) þakka þér..!

og ég sat, leið eins og hálfvita... vissi ekki hvað ég átti að segja eða gera... snéri mér að bekkjarfélögum mínum og við hlógum...

vorum í uppeldisfræði um daginn, og þá komst ég að einu frekar athyglisverðu... það virðist vera svo að Íslendingar mega ekki taka þátt í raunveruleikaþáttunum Survivor..! mér brá þegar ég heyrði þetta..! það er þá talið að Íslendingar séu of hæfir í að bjarga sér útí náttúrunni og svoleiðis til þess að mega taka þátt! Framleiðendur þáttarins vilja þá greinilega bara fá einhverja heimska, og ósjálfbjarga asna..! fáránlegt! þannig það er greinilegt að ef að Íslendingur færi þarna þá myndi hann rústa þessu! enn og aftur sannar það að Íslendingar eru meiri naglar en tjah já, allir..!

en hoppandi úr einu í annað..! ef þig vantar vinnu, og langar að vinna við það að selja ullarnærföt frá Noregi, þá er slík búð að koma til Akureyrar..! Janusbúðin! og starfsmenn óskast..!

og líka það að ég hef heyrt að ég tali uppúr svefni..! en ég varð vitni að einu fyndasta svefn spjallið í langan tíma í vikunni..! ég var inní herbergi, horfandi á sjónvarpið... þegar ég heyri muldur... kippi mér venjulegast ekkert upp við það, en muldrið hélt áfram..! ég snéri mér við og ákvað að fara að spjalla við Jónas þar sem hann var greinilega í hörkuspjalli við sjálfan sig uppúr svefni..!;) ég skildi ekki muldrið svo ég sagði ha, og ha aftur og þangað til hann ropaði því útúr sér nógu skýrt og þá heyrði ég að það sem hann var að reyna að segja var "Eat them!" og hann sagði það aftur þegar ég spurði hann hvað hann væri eiginlega að segja..! og ég ákvað svo að spurja hvað hann væri eiginlega að meina..! og þá var mér svarað með þessu: "æji, ekki reyna að tala við langleidda menn í dönsku!" ég hugsaði, skildi ekkert hvað hann var að tala um... og fór að sofa..!;)

og svo er það eitt sem ég þarf að koma hérna inn áður en ég segji þetta gott í bili..! það er varðandi hann Sveinbjörn vin minn! ég, hann og jónas sátum inní gryfju á miðvikudaginn síðastliðinn í hádeginu... ég var með pappa - vatnsglas, kók glösin þarna rauðu og snéri því á hvolf..! og var e-d að banka enninu á mér í það... ég spurði strákana hvort þeir héldu að ég gæti lamið það svo fast með hausnum að það myndi beyglast alveg niður... þeir svöruðu neitandi..! og þá sagði hann Sveinbjörn, prófaðu að ýta því bara niður með enninu, ekki lemja því í glasið... og ég byrjaði að ýta með enninu í glasið! og þá fann ég þennan agalega skell aftaná hnakkann! og sársauka á ennið útaf glasinu! ég leit upp og sá þetta agalega glott á Sveinbirni Árna! og ég get svarið það að ég hef aldrei verið reið við þennan dreng en þarna munaði engu að ég hefði rokið yfir borðið og bitið hann og svo slegið hann..! ég öskraði úr sársauka því þetta var allt annað en laust högg og hann viðurkenndi það sjálfur og sagði að þetta var fastara en hann ætlaði..! og svo gerðu þeir grín af mér því það myndaðist smá saman hringur á ennið á mér... ég hló ekki mikið! því svo fór þetta að verða upphleyft! en ég var spurð nokkrum sinnum þennan dag hvað væri á enninu á mér! en þetta hjaðnaði þegar leið á daginn!
en svo fékk drengurinn svona svoltið samviskubit og ákvað að bjóða okkur Jónasi í mat! þjóðarréttinn Lasagnea og auðvitað hvítlauksbrauð! svona til þess að hafa mig góða! ég segji að hann hafi orðið hræddur! 8) þetta var atvik sem ég mynd aldrei gleyma og ég á svo eftir að hefna mín og hann veit það vel..! ó hvað það verður ljúft..! :haha:;) en þetta var svona -það er hægt að hlægja að þessu seinna atvik! svona eins og þegar strákarnir í 2.G hentu mér út um gluggann í fyrra í stærðfræðitíma á Möðruvöllum! ég get hlegið að því í dag! en það var frekar erfitt fyrir mig svona 5 sekúndum eftir að mér var hent á sokkunum í snjóskafl og þurfti að labba hringinn..!;)

en jæja, þetta er komið nóg! og það er komin helgi!
og það er bóndadagurinn í dag! en eins og Dagný sagði skýrt að hún þyrfti ekkert að gera fyrir Hreinsa afþví hann ætti ekki rollur..! hah! bara fyndið! en þá verð ég nú víst að gera e-d... ef ég veit rétt þá er hann Jónas rollueigandi..!

Mynd! auðvitað..!

blakið fer að byrja á ný..!

svo langt að það verður bara ein mynd í þetta skiptið..!

jæja þorramatur í kveld í Rimasíðunni! og Sixties að spila um helgina! langar að fara!
jæja komið nóg!

-svala:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3